Landspítalinn velur gæðastjórnunarkerfið CCQ


Landspítalinn hefur valið CCQ gæðstjórnunarkerfi frá Origo eftir útboðsferli sem Ríkiskaup stýrðu en samningur milli Landspítala og Origo var undirritaður á dögunum. CCQ gæðastjórnunarkerfið frá Origo er þróað með íslensku hugviti af sérfræðingum í rekstri stjórnkerfa sem byggir á áratuga reynslu af þróun stafrænna lausna og er rekin í skýinu. Þetta verður mikið framfaraskref fyrir Landspítalann sem hefur hingað til verið með eldra gæðakerfi sem komin þörf var á að betrumbæta. 

„Við hlökkum til að vinna með Landspítalanum að innleiðingu og rekstri á CCQ því við erum sannfærð um að það mun vera bylting í rekstri gæðastjórnunarkerfis Landspítalans. Ég vona að sjúklingar og starfsfólk muni finna mun þegar nútímalegt gæðastjórnunarkerfi heldur utan um gæðaskjöl, verkferla og vinnulýsingar spítalans,“ segir Kristín Hrefna Halldórsdóttir, forstöðuman gæða- og innkaupalausna Origo.

Það verður spennandi verkefni að leiða innleiðingu á nýju gæðakerfi innan Landspítala en með nýju kerfi CCQ verða gæðahandbækur Landspítala sameinaðar í eina heilsteypta gæðahandbók

Gunnhildur Ingólfsdóttir, gæðastjóri klínískrar rannsóknar- og stoðþjónustu Landspítala


CCQ er heildstæð gæðastjórnunarlausn til að meðhöndla þætti sem snúa að bættum verkferlum og vinnulýsingum. Einn besti ávinningurinn sem fæst af stafrænni lausn eins og CCQ er sjálfvirkt upplýsingaflæði, sem minnir ábyrgðaraðila á verkefni hvort sem skjal þarf samþykki, endurskoðun eða endurútgáfu. 

Jón Árni Bragason, Maria Hedman, Kristín Hrefna Halldórsdóttir, Gunnhildur Ingólfsdóttir,Ágúst Kristján Steinarsson, Hildur Björk Pálsdóttir, Ísleifur Örn Guðmundsson.


„Þetta tryggir að réttar upplýsingar séu í höndum alls starfsfólks Landspítalans sem þarf svo sannarlega á því að halda í sínu mikilvæga starfi. Í CCQ er einnig hægt að nota hnapp fyrir staðfestingu á lestri skjala. Þegar verklagsreglur breytast eins og oft gerist í flóknu starfsumhverfi eins og á Landspítalanum er mikilvæg fyrir starfsfólk og stjórnendur að hafa réttar upplýsingar við höndina öllum stundum,“ segir María Hedman, vörustjóri CCQ.

Similar Posts