Viltu betri leið til að halda utan um gæðakerfið?

Ertu kannski gæðastjóri, búinn að byggja upp gott gæðakerfi og veist hvar öll skjöl eru, bæði gild og í vinnslu? Frábært – en hvað gerist ef þú hverfur úr starfi af einhverri ástæðu?

Að vista gæðaskjöl á sameiginlegum skráasvæðum getur virkað vel. Vandamálið er ekki að ekki hafi verið vandað til verka eða upplýsingar vanti – frekar að aðrir notendur eigi erfitt með að finna réttu skjölin þegar á þarf að halda.

Vandamál sem upp geta komið þegar gæðaskjöl eru vistuð á sameiginlegu skráasvæði

  • Jafnvel þó umsjónarmaður kerfisins viti nákvæmlega hvar hvert skjal á heima og hvaða skjöl eru í hvaða möppu, geta aðrir átt erfitt með að átta sig á skipulaginu.
  • Ef settar eru inn krækjur í önnur skjöl þarf að uppfæra þær krækjur handvirkt þegar nýjar útgáfur eru gerðar. Það tekur mun lengri tíma heldur en í hugbúnaðarlausn sem uppfærir krækjurnar sjálfkrafa, og hætta er á mistökum þannig að krækjur virki ekki eða vísi í eldri útgáfur skjala.
  • Í handvirku skjalakerfi er flókið að halda utan um breytingasögu skjala þegar kemur að úttekt eða atvik sem kalla á rekjanleika aftur í tímann.

Möguleikar í heildstæðu hlítingarkerfi í skýinu

Mörg hugbúnaðarkerfi fyrir gæðastjórn og hlítingu krafna eru til á markaðnum. Þau eru mismunandi að gerð en hjálpa flest við uppbyggingu gæðakerfis með samræmdum hætti, þannig að ákveðin sjálfvirkni aðstoði við uppbyggingu kerfisins. Flestar slíkar lausnir í dag eru reknar í einhvers konar skýjaþjónustu til að notendur hafi aðgang að kerfinu óháð staðsetningu.

Nokkrir kostir við slík hugbúnaðarkerfi eru:

  • Það er auðveldara að uppfylla kröfur staðla, laga og reglugerða.
  • Öllum tilheyrandi skjölum og tengdum gögnum er safnað á einn stað.
  • Hlítingarferlar og aðferðafræði er innbyggð í kerfið.
  • Auðveldara að tryggja að verklag uppfylli kröfur
  • Útgáfustýring og rekjanleiki gagna er tryggður.

Ef þú vilt nánari upplýsingar um hvernig CCQ gæðastjórnunar- og hlítingarkerfið getur bætt skjalastýringu gæðaskjala og auðveldað innri og yfir úttektir, smelltu hér:

Similar Posts